|
|
15.08.2010 21:20:26 / 1971
Til hamingju með daginn Hallbjörn  Ágúst 
»
07.08.2010 18:02:52 / 1971
Hæhæ Yngri drengurinn minn var skírður í dag og fekk nafnið Andri Jón. Við áttum frábæran dag og allir ánægðir með nafnið  Ágúst 
»
07.07.2010 22:17:00 / 1971
Hún Stína á afmæli í dag, reyndar les hún ekki þetta blogg.....en vildi samt kasta kveðju á hana, en reyndar búinn að hringja í hana og kasta kveðju á feisið  Ágúst
»
06.07.2010 21:10:54 / 1971
hæhæ Eg ætla að halda áfram að skrifa þrátt fyrir að enginn sé að lesa.  En fyrir hann Hallbjörn, þá fæddist drengur þann 18.júní og allt gekk rosalega vel. Hann var 55 cm og 3875g, flottur drengur. Sá eldri er kominn í sumarfrí frá leikskólanum og ég ætla að vinna út þessa viku og fara svo í frí, get ekki beðið eftir því. Ekkert er planað í fríinu, hugsanlega vinna smá aukavinnu, en það verður ekki mikið. Ég og Magnús töluðum um að hvort við öll ættum ekki að fara einn laugardag til Þingvalla eða eitthvað annað. Taka með nesti og gera eitthvað skemmtilegt. Líst ykkur ekki vel á það? Kv Ágúst 
»
09.06.2010 08:49:49 / 1971
hæhæ Hvað er að frétta af öllum? eru allir hættir að skrifa? Kv Ágúst 
»
20.03.2010 12:48:20 / 1971
Til hamingju með daginn í gær Berglind mín. Vona að þú hafir átt góðan dag  Águst
»
16.03.2010 13:46:06 / 1971
Til hamingju með daginn elsku Svandís mín, ég bíst að vísu ekki við að þú lesir þetta þar sem enginn virðist lesa þessa síðu okkar  En ég prufa samt. Kær kveðja frá DK. Þinn Hallbjörn
»
19.02.2010 18:57:39 / 1971
Til að sýna að ég sé ekki búin að gleyma þessari síðu ákvað ég að setja inn nokkur orð. Það er bara gott að frétta héðan frá Álaborg. Hér snjóar og snjóar og okkur líður eins og það hafi snjóað stanslaust síðan fyrir jól. Það er þó ekki svo slæmt en það hefur ekki tekið upp snjó síðan um 18. des og svo bætir í öðru hvoru. Til dæmis núna er danskur snjóstormur, búið að kyngja niður snjó frá því í gær. Allir Danir inni vegna veðurs en ég ákvað að skella mér í sund með strákana. Það bítur sko ekkert á okkur Blönduósingana/Íslendingana. Það mætti þó fara að vora. Mótorhjólið er búið að vera í geymslu síðan fyrir jól og því mikið að gera að skutlast með fjölskyldumeðlimi fram og tilbaka. Það lendir víst mest á mér þessa dagana sem ég finn þó mest fyrir þegar Birna á að mæta i vinnu kl. hálf sjö eða sjö. Þá er nótt og það hentar mér bara alls ekki að fara á fætur til að skutla frúnni. Þetta var miklu skemmtilegra í haust þegar hún fór bara sjálf á hjólinu og ég rétt rumskaði þegar hún kvaddi. Svo á að fara að ferma elsta barnið og erum við að skoða þau mál þessa dagana. Hvernig fermir maður í fyrsta skiptið? Ég átti að fara með Tómas í messu í gærkvöldi en henni var frestað vegna veðurs fram í lok maí þ.e. eftir fermingu, þannig að presturinn fær líklega ekki að sjá mig í maí  Kær kveðja frá DK, ykkar Hallbjörn
»
08.02.2010 21:04:17 / 1971
BÖÐVAR Á AFMÆLI Í DAG...TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN BÖÐVAR!!! ER EG EINI SEM LES ÞETTA BLOGG ÞESSA DAGANA  KV ÁGÚST
»
04.12.2009 09:08:58 / 1971
hæhæ Fyrir þá sem komust ekki í hádegismatinn í síðustu viku, þá var það tilkynnt að annað barn væri á leiðinni. Við vorum í sónar í gær og allt lítur þetta rosalega vel út. Áætluð koma barnsins er 12.júní næstkomandi (sem er augljóst), en það er nú líklegt að íbúar á Hólabrautinni hafi frétt af því  Áki minn er orðinn rosalega stór og skemmtilegur. Ég ætla að segja sömu sögu og eg sagði í síðasta hádegishitting. Það var einn morguninn að Alma mín var inn á baðherbergi að losa sig við morgunmatinn, morgun ógleðin að segja til sín. Áki stóð hinu megin við dyrnar á ganginum og fór að herma eftir mömmu sinni, hann hóstaði og hóstaði og hlóg svo á eftir, svo byrjaði mamma hans aftur, þá byrjaði hann að hósta og hlægja....drengurinn algjör snilli  Jæja, en hvar eru allir góðu pennarnir sem hafa verið svo dulegir að skrifa inn á þetta blogg? Eigum við ekki að setja líf í þetta aftur?? Einhverjar fréttir frá Aalborg eða Hólabrautinni?? kv Ágúst
»
06.09.2009 12:16:13 / 1971
Til hamingju með daginn Maggi minn. Kv Ágúst
»
03.09.2009 20:56:00 / 1971
hvernig gengu nefndarstörf um síðustu helgi???
»
26.08.2009 17:57:04 / 1971
Breathe
No Line On The Horizon
Get On Your Boots
Magnificent
Beautiful Day
Mysterious Ways
I Still Haven't Found What I'm Looking For
Stay
Unknown Caller
Unforgettable Fire
City of Blinding Lights
Vertigo
I'll Go Crazy If I Don't Go Crazy Tonight (Remix)
Sunday Bloody Sunday
Pride (In The Name of Love)
MLK
Walk On
Where The Streets Have No Name
One
Bad
--------
Ultraviolet
With Or Without You
Moment of Surrender
Þetta eru þau lög sem U2 tóku í Millenium Stadium í Cardiff á laugardögskvöldið síðastliðna. Og því líkir tónleikar, sviðið, show-ið, hljóðkerfið, 88.000 manna kór og svo maður gleymi nú ekki frábærum listamönnum. Ég var rétt í þessu að hlusta á U2 disk í græjunum og þegar lögin koma sem voru spiluð á tónleikunum þá fæ ég svona ánægjuhroll. Ég á ekki til orð til að lýsa þessum tónleikum nóguvel, þið verðið bara að fara  En til að ég komi nú aðeins með ferðasöguna, þá var lagt af stað frá Álaborg til Árhúsa kl 0700 á föstudagsmorguninn. Í Árhús var stokkið upp í flugvél RyanAir og það er upplifelsi út af fyrir sig, það er sko engin sæti tekin frá, bara fyrstur kemur fyrstur fær. Allar flugfreyjur frá fyrrverandi austantjaldslöndum og flugmennirnir held ég bara líka, minnsta kosti var erfitt að skilja þá eins og flugfreyjurnar og hreimurinn sagði allt. Svo var lent á Stansted flugvellinum í London, leygður bíll og keyrt til Swindon sem er svona mitt á milli London og Cardiff. Þetta er kannski of mikil einföldun á hlutunum "leygður bíll og keyrt til Swindon". Vinstri handar umferð, stýri hægra megin, beinskiptur bíll og ég bauðst til að keyra. Til að gera langa sögu stutta þá var mikið hlegið af mér um helgina og þetta er sko ekki auðvelt  Á leiðinni til Swindon voru miklar umferðartafir og ferðalangarnir orðnir svangir, tekin var sú ákvörðun að keyra af hraðbrautinni og finna mat. Ekki vorum við mikið að lesa á skiltin þegar keyrt var af hraðbrautinni og þegar við komum inn í næsta bæ blasti við okkur mikill kastali, stuttu seinna áttuðum við okkur á því að bærinn heitir Windsor Svo var keyrt áfram til Swindon, skráðum okkur inn á hótelið, svo út að borða á Indverskum stað. Ástæðan fyrir því að Swindon varð fyrir valinu hótellega séð var að öll hótel voru uppbókuð í Cardiff í byrjun júní og næstu bæjum líka þannig að hótel í Swindon var næst. Fínt hótel og bærinn ágætur. Á laugardagsmorguninn var byrjað á því að kíkja í búðir í Swindon og svo haldið af stað til Cardiff, höfuðborgar Wales. Það gekk áfallalaust og einnig að finna bílastæði niðri í bæ. Að vísu var umferðin að þyngjast og við vorum alveg á réttum tíma að finna stæði þarna um tvöleytið, U2 átti sko að byrja spila 20:20 um kvöldið. Cardiff var full af fólki út af tónleikunum en tókst okkur að finna borð úti við pöbb og fá okkur að borða. Svo var bara slappað af. Um 17:30 fórum við að rölta að Millenum Statium en upphitunar böndin áttu að byrja um 17:00. Þau voru svo sem ágæt, en ekkert í líkingu við það sem á eftir kom. Svo byrjuðuð U2 og það var bara VÁ, stundum hætti Bono að syngja í miðju lagi og lét kórinn syngja og 88.000 manna kór hljómar sko rosalega, bara gæsahúð  Eftir 2 tíma af gæsahúð var haldið til Swindon aftur í gegnum biðraðirnar, en það hafðist á endanum. Svo gekk sunnudagurinn í garð og við Birna vorum enn brosandi hringinn eftir tónleikana. Þar sem miklar umferðartafir voru á hraðbrautunum á föstudeginum stakk ég upp á því að keyra sveitavegina til Oxford svo til Milton Keynes og enda á Stansted flugvellinum. Sveitavegirnir í Englandi eru svolítið merkilegir þeir eru valla fyrir einn bíl og hvað þá tvo, en þetta tókst allt og við komumst til Oxford. Oxford er mjög falleg borg og var eitt svona stutt stopp ekki nóg fyrir þá borg. Milton Keynes var næst og verð ég að viðurkenna að þegar ég skipulagði þessa tvo punkta (Oxford og Milton Keynes) í bókabúðinni í Swindon kíkjandi í kortabók, þá hafði ég ekki hugmynd um hvað Milton Keynes væri, annað en nafn á korti. Svo þegar við komum til Milton Keynes blasti við okkur ekkert, og ekkert sem benti til neins nema skilti sem stóð á Milton Keynes. Þannig að Milton Keynes er enn sem komið er ráðgáta í mínu höfði  Á endanum komumst við til Stansted og flugum heim til DK. Frábær ferð á enda og frábærir tónleikar, U2 eru komnir á nýjan stall í mínum huga. Kv Hallbjörn
»
16.08.2009 11:36:35 / 1971
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Í GÆR KÆRI HALLBJÖRN  KV AGUST
»
13.08.2009 21:21:33 / 1971
Annað kvöld klukkan 20 og á laugardaginn klukkan 17. Brúðkaup Fígarós og Leyndarmál Súsönnu á morgun, en bara brúðkaupið á laugardag. Væri gaman að sjá ykkur þar  M
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
|