|
Bestu vinir
|
|
|
26.08.2009 17:57:04 / 1971
VÁ!
Breathe
No Line On The Horizon
Get On Your Boots
Magnificent
Beautiful Day
Mysterious Ways
I Still Haven't Found What I'm Looking For
Stay
Unknown Caller
Unforgettable Fire
City of Blinding Lights
Vertigo
I'll Go Crazy If I Don't Go Crazy Tonight (Remix)
Sunday Bloody Sunday
Pride (In The Name of Love)
MLK
Walk On
Where The Streets Have No Name
One
Bad
--------
Ultraviolet
With Or Without You
Moment of Surrender
Þetta eru þau lög sem U2 tóku í Millenium Stadium í Cardiff á laugardögskvöldið síðastliðna. Og því líkir tónleikar, sviðið, show-ið, hljóðkerfið, 88.000 manna kór og svo maður gleymi nú ekki frábærum listamönnum. Ég var rétt í þessu að hlusta á U2 disk í græjunum og þegar lögin koma sem voru spiluð á tónleikunum þá fæ ég svona ánægjuhroll. Ég á ekki til orð til að lýsa þessum tónleikum nóguvel, þið verðið bara að fara  En til að ég komi nú aðeins með ferðasöguna, þá var lagt af stað frá Álaborg til Árhúsa kl 0700 á föstudagsmorguninn. Í Árhús var stokkið upp í flugvél RyanAir og það er upplifelsi út af fyrir sig, það er sko engin sæti tekin frá, bara fyrstur kemur fyrstur fær. Allar flugfreyjur frá fyrrverandi austantjaldslöndum og flugmennirnir held ég bara líka, minnsta kosti var erfitt að skilja þá eins og flugfreyjurnar og hreimurinn sagði allt. Svo var lent á Stansted flugvellinum í London, leygður bíll og keyrt til Swindon sem er svona mitt á milli London og Cardiff. Þetta er kannski of mikil einföldun á hlutunum "leygður bíll og keyrt til Swindon". Vinstri handar umferð, stýri hægra megin, beinskiptur bíll og ég bauðst til að keyra. Til að gera langa sögu stutta þá var mikið hlegið af mér um helgina og þetta er sko ekki auðvelt  Á leiðinni til Swindon voru miklar umferðartafir og ferðalangarnir orðnir svangir, tekin var sú ákvörðun að keyra af hraðbrautinni og finna mat. Ekki vorum við mikið að lesa á skiltin þegar keyrt var af hraðbrautinni og þegar við komum inn í næsta bæ blasti við okkur mikill kastali, stuttu seinna áttuðum við okkur á því að bærinn heitir Windsor Svo var keyrt áfram til Swindon, skráðum okkur inn á hótelið, svo út að borða á Indverskum stað. Ástæðan fyrir því að Swindon varð fyrir valinu hótellega séð var að öll hótel voru uppbókuð í Cardiff í byrjun júní og næstu bæjum líka þannig að hótel í Swindon var næst. Fínt hótel og bærinn ágætur. Á laugardagsmorguninn var byrjað á því að kíkja í búðir í Swindon og svo haldið af stað til Cardiff, höfuðborgar Wales. Það gekk áfallalaust og einnig að finna bílastæði niðri í bæ. Að vísu var umferðin að þyngjast og við vorum alveg á réttum tíma að finna stæði þarna um tvöleytið, U2 átti sko að byrja spila 20:20 um kvöldið. Cardiff var full af fólki út af tónleikunum en tókst okkur að finna borð úti við pöbb og fá okkur að borða. Svo var bara slappað af. Um 17:30 fórum við að rölta að Millenum Statium en upphitunar böndin áttu að byrja um 17:00. Þau voru svo sem ágæt, en ekkert í líkingu við það sem á eftir kom. Svo byrjuðuð U2 og það var bara VÁ, stundum hætti Bono að syngja í miðju lagi og lét kórinn syngja og 88.000 manna kór hljómar sko rosalega, bara gæsahúð  Eftir 2 tíma af gæsahúð var haldið til Swindon aftur í gegnum biðraðirnar, en það hafðist á endanum. Svo gekk sunnudagurinn í garð og við Birna vorum enn brosandi hringinn eftir tónleikana. Þar sem miklar umferðartafir voru á hraðbrautunum á föstudeginum stakk ég upp á því að keyra sveitavegina til Oxford svo til Milton Keynes og enda á Stansted flugvellinum. Sveitavegirnir í Englandi eru svolítið merkilegir þeir eru valla fyrir einn bíl og hvað þá tvo, en þetta tókst allt og við komumst til Oxford. Oxford er mjög falleg borg og var eitt svona stutt stopp ekki nóg fyrir þá borg. Milton Keynes var næst og verð ég að viðurkenna að þegar ég skipulagði þessa tvo punkta (Oxford og Milton Keynes) í bókabúðinni í Swindon kíkjandi í kortabók, þá hafði ég ekki hugmynd um hvað Milton Keynes væri, annað en nafn á korti. Svo þegar við komum til Milton Keynes blasti við okkur ekkert, og ekkert sem benti til neins nema skilti sem stóð á Milton Keynes. Þannig að Milton Keynes er enn sem komið er ráðgáta í mínu höfði  Á endanum komumst við til Stansted og flugum heim til DK. Frábær ferð á enda og frábærir tónleikar, U2 eru komnir á nýjan stall í mínum huga. Kv Hallbjörn
|
|